Choose year
Egill Sæbjörnsson: Sófinn
NonTVTVstation er rekin af Splintermind i Stokkhólmi í samstarfi við nokkur söfn, flest á Norðurlöndum. Verkefnið fór af stað árið 1999 og síðan þá hefur nonTVTVstation sýnt rauntímalist allan sólarhringinn. Allt það sem sýnt er á nonTVTVstaiton verður til á sama augnabliki og áhorfandinn sér það. Á meðan listamaðurinn heldur sig innan þessa ramma má hann nota hvaða tækni sem hann eða hún vill.
nonTVTVstaion er dreift í rauntíma um Internetið til fjögurra héraðssafna í Svíþjóð, til Kiasma í Helsinki og til Listasafns Reykjavíkur. Þess utan er nonTVTVstation í samstarfi við SAT í Montreal, Eyebeam í New York, Museet For Samtidskunst í Hróarskeldu, Furtherfield í London ásamt Ethics TV í Feneyjum. Þökk sé einstakri dreifingartækni eru sendingarnar sýndar í söfnunum á stórum skjám og í gæðum sem jafnast næstum á við sjónvarp.
Þegar nonTVTVstation hefur samstarf við Listasafn Reykjavíkur þá viljum við að sjálfsögðu kynna íslenskan myndlistarmann, Egil Sæbjörnsson, og senda verk hans út frá Reykjavík.
Í safninu hefur Egill sett upp bláskjá og fyrir framan hann er sófi sem áhorfendum er boðið að setjast í. Blái bakgrunnurinn mun í sendingunni breytast í myndverk Egils. Hér er mögulegt að stíga á svið og leika fyrir framan áhorfendur á söfnunum sem tengd eru nonTVTVstation og á heimasíðu Splintermind. Sviðið er hins vegar ekki allt þitt. Þú munt leika á móti fjörugu ímyndunarafli Egils Sæbjörnssonar.
Umhverfið minnir á málverk eins og finna á mörkuðum og í skemmtigörðum þar sem þú getur stungið hausnum í gegnum gat og látið mynda þig í eyðimörk eða á ströndinni eða öðru því umhverfi sem er málað á flekann. Það minnir einnig á vinnubrögð portrett ljósmyndara á 19. öld þegar venjan var að taka portrett í sviðsmynd. Bláskjárinn minnir einnig á vinnubrögð frumherjanna í skjálist eins og Nam June Paik og annara sem notuðu þessa tækni til að geta framið gjörninga í mismunandi umhverfi í myndbandsverkum sínum. Athafnir áhorfandans eru órjúfanlegur hluti verksins og sú félagslega vídd er kjarninn í hugmynd Egils um sófann. Samspilið við gestina og Listasafnið er nauðsynlegt fyrir mótun verksins.
Click on the pictures to view some more on Instagram and post your own by using the #hashtag of the exhibition.
Remember to follow Reykjavík Art Museum on @reykjavikartmuseum.