Ný sýning – Iðavöllur: Íslensk myndlist á 21. öld

Ný sýning í Hafnarhúsi – Iðavöllur: Íslensk list á 21. öld

Sýningin Iðavöllur verður opnuð í Hafnarhúsi, fimmtudaginn 10. júní kl. 20-22.00. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri opnar sýninguna.

Vegna framkvæmda í Tryggvagötu er gengið inn í Hafnarhúsið um Portið, frá Naustunum – milli Hafnarhússins og Tollhússins. 

Listasafn Reykjavíkur iðar af lífi á öllum vígstöðvum og opnar nú dyrnar að stórsýningunni Iðavelli í Hafnarhúsi. Þar koma saman fjórtán öflugir listamenn sem hafa umbreytt Hafnarhúsinu með verkum sínum og þeirri grósku sem einkennir íslenska myndlistarsenu. Listamenn sem líta má á sem leiðandi afl sinnar kynslóðar. Nokkuð er liðið síðan staðan var tekin á þeim hræringum sem eru í deiglunni meðal þeirra listamanna sem eru í mestum vexti og blóma á sínum ferli og endurspegla viðfangsefni og nálgun samtímans.

Yfirskrift sýningarinnar er Iðavöllur. Titillinn er fengið að láni úr Völuspá og kemur þar tvisvar við sögu. Iðavöllur er staðurinn þar sem æsir hittast við frumsköpun heimsins og koma síðan aftur saman á eftir Ragnarök til þess að skapa nýja heimsmynd. Hafnarhúsið tekur á sig hlutverk slíks Iðavallar sem vettvangur skapandi listamanna í hringiðu umbreytinga við upphaf nýrrar þúsaldar. Þema sýningarinnar er þannig hinn skapandi og umbreytandi kraftur sem býr í vinnu listamanna og hún endurspeglar fjölbreytt viðfangsefni á tímum jafnt tæknilegra sem félagslegra umbreytinga. 

Val listamanna ræðst af samspili þess með hvaða hætti þau bregðast við samtímanum og um leið hvernig sjónarhorn þeirra hefur áhrif á sjónarhorn áhorfenda. Þessi kynslóð er sérstök fyrir þau tímamót sem hún upplifir: Hún fellur á milli X og Y kynslóða, hún man eftir heiminum án internets og snjallsíma, upplifði efnahagshrunið, tók inn MeToo byltinguna, skynjar mörk jarðsögulegs tíma og mannlífstíma og horfist í augu við hamfarahlýnun. Listamennirnir taka þátt í uppbyggingu listalífs sem er að fagvæðast með tilkomu listaháskóla, alþjóðlegra gallería og útgáfu listasögunnar. Þetta eru fulltrúar kynslóðar sem tekst á við aukinn hraða, meira upplýsingaflæði, óljósari landamæri, reikult kyngervi, breytt samskiptamynstur, nýja tækni – allt á meðan þau muna á eigin skinni það sem áður var. Þau upplifa endalok heimsins í vissum skilningi og leggja sitt af mörkum við nýtt upphaf.

Listamenn: Anna Júlía Friðbjörnsdóttir, Anna Rún Tryggvadóttir, Arna Óttarsdóttir, Arnar Ásgeirsson, Bjarki Bragason, Dodda Maggý, Elín Hansdóttir, Eva Ísleifs, Guðmundur Thoroddsen, Hildigunnur Birgisdóttir, Páll Haukur Björnsson, Rebecca Erin Moran, Styrmir Örn Guðmundsson og Örn Alexander Ámundason.

Sýningarstjórar eru Aldís Snorradóttir, Markús Þór Andrésson og Ólöf Kristín Sigurðardóttir.