11.05.2021
Síðasta sýningarhelgi á Dýrslegum krafti
Sýningunni Dýrslegur kraftur lýkur sunnudaginn 16. maí.
Á sýningunni eru verk Errós frá ýmsum tímum sett í samhengi íslenskrar samtímalistar. Verkin á sýningunni eru fjölbreytt og vísa til og/eða endurspegla á einn eða annan hátt þá fjölmörgu miðla sem Erró er þekktur fyrir og þann frjóa og kraftmikla hugmyndaheim sem birtist okkur í verkum hans.