Sýningarlok – Birgir Andrésson: Eins langt og augað eygir

Sýningarlok – Birgir Andrésson: Eins langt og augað eygir

Síðasti dagur sýningarinnar Birgir Andrésson: Eins langt og augað eygir á Kjarvalssstöðum er sunnudagurinn 15. maí.

Eins langt og augað eygir er fjölbreytt og umfangsmikil yfirlitssýning á verkum myndlistarmannsins Birgis Andréssonar (1955-2007) sem tekur yfir nær alla Kjarvalsstaði.

Birgir var leiðandi afl í íslenskri myndlist í meira en 30 ár en féll frá langt fyrir aldur fram. Birgir leitaði í brunn íslenskrar menningar, sagna, hefða og handverks þjóðarinnar og dró þar fram þætti sem hann síðan setti fram á sinn einstæða hátt í verkum sem tryggðu honum sess í íslenskri listasögu og aðdáun á alþjóðlegum vettvangi myndlistar. Sýningin veitir innsýn í áhrifamikinn feril listamannsins og tengir verk hans við innlenda og erlenda samtímalist.

Sýnd eru yfir eitthundrað verk sem koma meðal annars úr safneign Listasafns Reykjavíkur, Listasafns Íslands, Nýlistasafnsins og Metropolitan safnsins í New York en einnig frá innlendum og erlendum einkasöfnurum.