Náttúra

Náttúra (Nature)
Náttúra er risastórt viðfangsefni í myndlist. Náttúra getur átt við lífríkið, dýr og plöntur, en líka umhverfi og landslag. Stundum gera listamenn myndir af náttúrunni, rannsaka náttúruna eða skoða tengsl manns og náttúru. Andstæðan við náttúru er það sem er manngert – eða er maðurinn kannski hluti af náttúrunni og öll hans verk þá líka náttúra?

Dæmi úr safneign:
Verkið Tortími eftir Rúrí er búið til úr ljósmynd sem listakonan tók af fossi. Þessi foss er ekki lengur til, því að hann hvarf þegar ákveðið var að virkja ána til raforkuvinnslu. Þegar áhorfandinn nálgast verkið kviknar á skynjara sem setur af stað tætara. Smám saman tætist myndin upp og eyðileggst. Í verkinu fjallar Rúrí um tengsl manns og náttúru.

Mynd: Rúrí, Tortími, 2008

Vídeó: NÁTTÚRAN