16. maí 2019 - 20:00

D37 Gunnar Jónsson: Gröf

Exhibition Opening − D37 Gunnar Jónsson: Gröf
Staður viðburðar: 
Hafnarhús

Verið velkomin á opnun sýningarinnar í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi, fimmtudag 16. maí kl. 20.00. Tónlist og hamingjustund til kl. 22.00.

Gunnar Jónsson er 37. listamaðurinn sem sýnir í sýningarröð D-salar Listasafns Reykjavíkur.

Gunnar er fæddur í Reykjavík árið 1988 en ólst upp á Ísafirði og býr þar og starfar í dag. Gunnar lauk BA-prófi í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2012. Í verkum sínum rannsakar hann eigin uppruna, sjálfsmynd og umhverfi. Gunnar vinnur meðal annars með vídeó, ljósmyndir og tónlist. Hann er virkur í ýmsu félagsstarfi og er m.a. varamaður í stjórn Reykvíkingafélagsins á Ísafirði.

Markmið sýningarraðarinnar í D-sal er að gefa efnilegum listamönnum tækifæri til að vinna í fyrsta sinn að einkasýningu í opinberu listasafni og beina athygli gesta að nýjum og áhugaverðum hræringum innan listheimsins. Sýningarröðin hóf göngu sína árið 2007.