Sýningaropnun - Ásmundur Sveinsson: Vatnsberinn-Fjall+kona, 21. febrúar
Á sýningin, Ásmundur Sveinsson: Vatnsberinn-Fjall+kona, verður opnuð í Ásmundarsafni laugardaginn 21. febrúar kl. 16. Þar er þess minnst að á árinu 2015 er öld liðin frá því að konur fengu kosningarétt hér á landi, en það var þann 19. júní 1915. Sýningarstjóri er Harpa Björnsdóttir.
Hin kunna höggmynd Ásmundar Sveinssonar, Vatnsberinn (1937), er þungamiðja og leiðarstef sýningarinnar. Á sýningunni verða ásamt Vatnsberanum önnur valin verk Ásmundar, í samtali við verk þeirra Örnu Valsdóttur, Daníels Magnússonar, Kristínar Gunnlaugsdóttur, Níelsar Hafsteins, Ólafar Nordal, Ragnhildar Stefánsdóttur og Sigurðar Guðmundssonar. Nýlókórinn flytur verkið „Klessulist“ eftir Hörpu Björnsdóttur á opnuninni undir stjórn Snorra Birgis Sigfússonar. Verkinu er ætlað að kalla fram hughrif sem tengjast deilunum um Vatnsberann á árunum 1948-1955.
Vatnberarnir í Reykjavík voru ein lægsta stétt fólks í mannvirðingum á sínum tíma. Um vatnsburðinn sáu bæði konur og karlar, þó heldur fleiri konur. Þrátt fyrir að starf vatnsberanna væri eitt hið minnst metna og lægst launaðasta í Reykjavík, var það eina starfið þar sem jafnrétti ríkti í launamálum. Ásmundur gerði höggmyndina Vatnsberann til að heiðra minningu vatnsberanna og túlka styrk þeirra og seiglu, við gerð hans hafði hann tröllslega fjallamyndun Íslands í huga. Sumum Reykvíkingum þótti þó enginn heiður að höggmyndinni og hugmyndir um að staðsetja hana í miðbænum ollu langvinnum deilum á árunum 1948-1955 og ekki örgrannt um að væri pólitík blandið. Var Vatnsberinn meðal annars uppnefndur ófreskja og skrímsli með selshaus og hótað eyðileggingu. Vatnsberinn varð síðar kyndilmerki á veggspjaldi kvennafrídagsins í Reykjavík 1975 og þótti vera táknrænn fyrir sögu kvenna. Vitnar þetta um breyttan tíðaranda og breytilegt mat á listaverkum en ekki síður um hve stjórnmálamönnum getur orðið hált á því að reyna að stjórna listastefnum og fagurfræðilegu mati. Það er vel þess virði að rifja þessa sögu upp, auk ljósmynda og sögulegra heimilda um vatnsberana.
Sýningin stendur til 26. apríl 2015.