Veldu ár

2024 (7)
2023 (21)
2022 (16)
2021 (21)
2020 (21)
2019 (27)
2018 (19)
2017 (21)
2016 (18)
2015 (20)
2014 (19)
2013 (17)
2012 (17)
2011 (22)
2010 (26)
2009 (25)
2008 (24)
2007 (26)
2006 (14)
2005 (16)
2004 (24)
2003 (32)
2002 (18)
2001 (20)
2000 (19)
1999 (13)
1998 (11)
1997 (14)
1996 (17)
1995 (17)
1994 (17)
1993 (22)
1992 (27)
1991 (24)
1990 (24)
1989 (25)
1988 (38)
1987 (38)
1986 (26)
1985 (28)
1984 (34)
1983 (28)
1982 (30)
1981 (26)
1980 (27)
1979 (21)
1978 (23)
1977 (21)
1976 (24)
1975 (19)
1974 (11)
1973 (11)
07.06.2001
19.08.2001

1461 dagur

Sýningin sem sett verður upp í miðrými Kjarvalsstaða ber yfirskriftina "1461 dagur". Þar sýnir Grétar Reynisson verkefni sem hann hefur unnið að frá 1. janúar 1997 og sér ekki fyrir endann á enn. Þetta er vaxtarverkefni af þeirri tegund sem á ensku væri kallað "work in progress" -- og hefur að meginþema tilvistarlega skráningu tímans.

Verkefnið er annars vegar mótað af tímatalinu eins og við mælum það í dögum, vikum, mánuðum og árum. Hins vegar er það mótað af tilvistarlegri upplifun tímans og sjónrænni framsetningu þessarar upplifunar. Frá árinu 1998 hefur Grétar árlega haldið sýningu á afrakstri nýliðins árs á ólíkum stöðum: í Nýlistasafninu 1998, Gallerí i8 1999 og  í gryfju Listasafns ASÍ árið 2000.

Þegar kom að því að sýna afrakstur aldamótaársins 2000 kom upp sú hugmynd að setja allt verkefnið upp í eina sýningu sem um leið lokaði 20. öldinni á þessu ferli. Jafnframt var ákveðið að efna til útgáfu bókarkorns, sem myndar eins konar annál þessa ferlis fram að 31. desember árið 2000. Sýningin stendur til 19. ágúst.

Listamaður/-menn: 
Boðskort: 
Sýningarskrá: 
Umfjöllun fjölmiðla pdf: 
PDF icon 12985617.pdf (2.25 MB)
PDF icon 18926747.pdf (2.24 MB)
PDF icon 12988807.pdf (2.28 MB)
PDF icon 7723456.pdf (95.04 KB)

Smelltu á myndirnar til að skoða fleiri myndir á Instagram og póstaðu þínum eigin með því að merkja þær með #myllumerki sýningarinnar.
Mundu að fylgja Listasafni Reykjavíkur á @reykjavikartmuseum.