Veldu ár
Árstíðirnar í verkum Kjarvals
Um 1930 tók Kjarval að leggja mun meiri áherslu á að dvelja úti í náttúrinni og mála. Fyrstu áfangastaðir hans voru Þingvellir og hraunin í nágrenni Reykjavíkur. Hann fór mikið á sömu staðina og málaði sömu myndefnin aftur og aftur á mismundandi árstímum, í mismunandi veðri og birtu. Þessi vinnuaðferð var rannsókn á því hverning breytileg birta hvers dags í samspili við veðurfar en einnig litróf árstíðanna umbreytir náttúrunni og endarskapar hana.
Haustið 2013 var sett upp yfirlitssýning á verkum Kjarvals í rússneska Þjóðarsafninu í Pétursborg. Þar voru verk sem sýna túlkun hans á hraunbreiðum og fjallalandslagi Íslands og hvernig þetta landslag birtist honum að sumarlagi og vetrarlagi. Einnig verk þar sem Kjarval tvinnar saman landslagi og vættum í dularfulla og margræða heild. Sýningunni var vel tekið og gefst nú tækifæri á að sjá hana hér á Kjarvalsstöðum með vissum breytingum undir yfirskriftinni Árstíðirnar í verkum Kjarvals.
Sýningunni er deilt upp í þrjá hluta; Myndraðir, Haust/vetur og Vor/sumar. Flest verkanna eru í eigu Listasafns Reykjavíkur, Kjarvalssafns, en einnig hafa Listasafn Íslands, Gerðarsafn í Kópavogi, Listasafn ASÍ og einkaaðilar góðfúslega lánað verk á sýninguna.
Sýningarstjóri er Kristín G. Guðnadóttir lisfræðingur
Smelltu á myndirnar til að skoða fleiri myndir á Instagram og póstaðu þínum eigin með því að merkja þær með #myllumerki sýningarinnar.
Mundu að fylgja Listasafni Reykjavíkur á @reykjavikartmuseum.