Veldu ár
D34 María Dalberg: Suð
María Dalberg (f. 1983) er 34. listamaðurinn sem sýnir í sýningaröð D-salar sem hóf göngu sína árið 2007.
María útskrifaðist með M.A.-gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2016. Verk hennar hafa verið sýnd á fjölda samsýninga og kvikmyndahátíða víða í Evrópu og í Ameríku. Hún hefur unnið með vídeóinnsetningar, hljóð, gjörninga, ljósmyndir, teikningar og textaskrif. Tilraunir með efni og efniskennd í vídeóverkum og öðrum miðlum er stór þáttur í listsköpun hennar.
Meðal nýlegra sýningarverkefna má nefna Moscow Biennale fyrir unga listamenn (2016, sýningarstjóri Nadim Samman), Alt_Cph09 Alternative Art Fair í New York (2010, sýningastýrt af Kling&Bang), þátttöku í kvikmyndahátíðinni í Oberhausen (2010, sýningastjóri Hilke Doering) og sýningar í Bergens Kunsthall og í Photogalleriet í Osló árið 2008 (sýningarstjóri Maya Økland og Hilde Jörgensen).
Markmið sýningaraðarinnar í D-sal er að gefa efnilegum listamönnum tækifæri til að vinna í fyrsta sinn að einkasýningu í opinberu listasafni og beina athygli gesta að nýjum og áhugaverðum hræringum innan listheimsins.
Smelltu á myndirnar til að skoða fleiri myndir á Instagram og póstaðu þínum eigin með því að merkja þær með #myllumerki sýningarinnar.
Mundu að fylgja Listasafni Reykjavíkur á @reykjavikartmuseum.