Veldu ár
Einskonar hversdagsrómantík
Á síðastliðnum árum hefur verið lögð áhersla á að veita samtímalist inn í sýningarsali Kjarvalsstaða. Nú er efnt til umfangsmikillar myndlistarsýningar þar sem sýnd eru verk eftir þá listamenn sem teljast til yngstu kynslóðar íslenskra myndlistarmanna. Hér eru á ferðinni listamenn sem eru í þann mund að skapa sér rými í íslensku listalífi, og margir þeirra eiga eflaust eftir að marka djúp spor í íslenska listasögu þegar fram í sækir. Það er menningarmálanefnd sérstök ánægja að kynna almenningi verk þessara listamanna og gefa sýningargestum þannig forskot á framtíðina.
Smelltu á myndirnar til að skoða fleiri myndir á Instagram og póstaðu þínum eigin með því að merkja þær með #myllumerki sýningarinnar.
Mundu að fylgja Listasafni Reykjavíkur á @reykjavikartmuseum.