Veldu ár
Gunter Damisch: Veraldir og vegir
Sýningin spannar feril austurríska listamannsins Gunters Damisch (f. 1958) frá níunda áratug síðustu aldar til dagsins í dag. Damisch varð þekktur á níunda áratugnum sem einn úr hópi hinna „nýju villtu“ (Neue Wilde) sem var óformlegur hópur ungra listamanna sem brást við meintri hnignun málverksins á alþjóðavísu með því að mála kraftmiklar og litríkar myndir. Aðferðir Damisch eru fjölbreyttar en verkin á sýningunni falla öll undir hugtakið „þrykk“, allt frá hefðbundinni grafík til prentaðra trérista, einþrykksmynda og samklippiprent. Verkin sýna vel persónulegan myndheim Damisch sem birtist jafnt í abstrakt og fígúratífu myndmáli listamannsins. Verkin lýsa afstöðu listamannsins til myndlistarinnar sjálfrar, frelsinu sem fæst með tjáningu teikningarinnar og ánægjunni sem felst í sjálfu sköpunarferlinu.
Frá árinu 1992 hefur Gunter Damisch verið prófessor við Listaháskólann í Vínarborg. Hann hefur sýnt víða undanfarna áratugi, m.a. stóð Albertina safnið í Vínarborg fyrir stórri einkasýningu á verkum hans árið 2013.
Á sýningunni Veraldir og vegir eru verk sem listamaðurinn hefur gefið Listasafni Reykjavíkur ásamt öðrum verkum.
Smelltu á myndirnar til að skoða fleiri myndir á Instagram og póstaðu þínum eigin með því að merkja þær með #myllumerki sýningarinnar.
Mundu að fylgja Listasafni Reykjavíkur á @reykjavikartmuseum.