Veldu ár
Inga Svala Þórsdóttir: Borg
Á sýningu sinni, Borg, leggur myndlistarkonan Inga Svala Þórsdóttir, fram tillögu að milljón manna borgarskipulagi fyrir Íslendinga. Borgina hefur hún staðsett í landi Skallagríms í Borgarfirði. Hún sviðsetur byggðarkjarna og teiknar upp járnbrautarkerfi og brautarstöðvar. Inntak sýningarinnar vísar m.a. í mögulegt byggingarefni, formlausnir einstakra húsa, stofnanna og hverfa og þar eru settar fram hugmyndir um áhrif borgarinnar á íslenskan veruleika.
Borg Ingu Svölu er unnin í ólíka miðla; teikningar, skúlptúrar, neonverk, myndband og ljósmyndir. Inga Svala útskrifaðist frá málaradeild Myndlista og Handíðaskóla Íslands árið 1991. Hún fór í framhaldsnám við listaakademíuna í Hamborg, lauk þaðan prófi 1995 og hefur kennt við myndlistardeild hennar síðan 1999.
Smelltu á myndirnar til að skoða fleiri myndir á Instagram og póstaðu þínum eigin með því að merkja þær með #myllumerki sýningarinnar.
Mundu að fylgja Listasafni Reykjavíkur á @reykjavikartmuseum.