Veldu ár

2024 (7)
2023 (21)
2022 (16)
2021 (21)
2020 (21)
2019 (27)
2018 (19)
2017 (21)
2016 (18)
2015 (20)
2014 (19)
2013 (17)
2012 (17)
2011 (22)
2010 (26)
2009 (25)
2008 (24)
2007 (26)
2006 (14)
2005 (16)
2004 (24)
2003 (32)
2002 (18)
2001 (20)
2000 (19)
1999 (13)
1998 (11)
1997 (14)
1996 (17)
1995 (17)
1994 (17)
1993 (22)
1992 (27)
1991 (24)
1990 (24)
1989 (25)
1988 (38)
1987 (38)
1986 (26)
1985 (28)
1984 (34)
1983 (28)
1982 (30)
1981 (26)
1980 (27)
1979 (21)
1978 (23)
1977 (21)
1976 (24)
1975 (19)
1974 (11)
1973 (11)
20.09.2014
18.01.2015

Myndun

  • Mona Hatoum
  • Rintaro Hara
  • Ragna Róbertsdóttir

Hvorki náttúran sjálf né nokkuð annað er stöðugt eða óumbreytanlegt. Öll tilveran er endalaust ferli gert úr mynstrum sem verða til fyrir hreyfingu og virkni. Það á sannarlega við bæði um hinn ytri og innri heim mannlegrar vitundar. Þannig eru efnisleg form, hugsun jafnt og hegðun ávöxtur flókinna ferla.

Sýningin Myndun dregur saman verk sjö listamanna víðs vegar að. Þeir eru afsprengi ólíkra menningarheima með rætur í þremur heimsálfum.

Þeir eiga það sameiginlegt að verk þeirra eru þrívíðar innsetningar samdar í rýmið, og óma þar eins og hljóðlát sjónræn tónlist.

Verkin endurspegla ákveðna skynjun, hugsun og hrynjandi sem má túlka sem enduróm frá sjálfu lífinu, frumkröftunum, uppbyggingu efnisheimsins og stöðugri mótun alheimsins.

Annað sameinar líka þessa listamenn – sú djúpa athygli sem þeir nálgast  viðfangsefni sitt með hverju sinni. Þannig nálgast sumir listamenn sýningarinnar efnisheiminn á kerfisbundinn hátt með aðstoð vísindamanna, en aðrir beina hreinskilinni og vægðarlausri athygli að atferli og viðbrögðum manneskjunnar við aðstæðum sínum.

Verkin hafa orðið til í ferli. Oft í hægu ferli þar sem tíminn virðist hafa náð að hlaða verkin spennu. Þau fjalla um ferlið sem hluta af stærra ferli. Þau eru í eðli sínu hvorki ný né gömul. Þau bergmála í tímanum, jafnt fortíð, nútíð og framtíð. Þau koma okkur á óvart með ferskleika sínum, fornri visku og sterkri nærveru. Höfða til okkar vitsmunalega, hugmyndafræðilega og á skynrænan hátt.

Ingibjörg Jónsdóttir, sýningarstjóri

 

Um listamennina:

Ernesto Neto er einn fremsti listamaður Brasilíu. Abstrakt innsetningar hans eru oft mjög stórar og taka allt rýmið. Hann hefur alltaf unnið með kraft og jafnvægi, rökhyggju og skynjun.

Mona Hatoum er af palestínskur ættum, fædd í Líbanon. Verk hennar hafa átt þátt í að endurskilgreina samtímalist. Þau eru samsett úr þáttum eins og ögrun og hættu. Þau fjalla um áleitin mál, ófrið, menningarlegt ójafnvægi, flótta, útlegð og heimilisleysi. Misvægi og misnotkun valds.

Monika Grzymala frá Póllandi vinnur með innsetningar sem eru staðbundnar, þrívíðar teikningar sem verða til við könnun á aðstæðum, upplifun og hughrifum hennar af þeim stöðum sem hún kýs að vinna á og sýna. Innsetningarnar eru einnig tímabundnar og fjalla um hringrás lífsins og eilífar breytingar.

Verk Rögnu Róbertsdóttur birtast okkur hljóðlát og yfirveguð. Ef nánar er að gáð er efniviður þeirra þó afrakstur  sterkra náttúruafla, eldvirkni jarðar og niðurbrots sjávar.

Rintaro Hara frá Japan sækir innblástur sinn í japanska sagnahefð. Viðfangsefni hans fjalla oft um samtal og tungumál. Samtal kynslóðanna, menningarheima og misskilningsins sem virðist svo oft óhjákvæmilegur.

Ryuji Nakamura, arkitekt og myndlistarmaður frá Japan vinnur innsetningar sem taka oft allt rýmið. Þær eru jafnvel svo stórar að það er útilokað að fá yfirsýn yfir þær frá einu sjónarhorni. Þrátt fyrir stærðina og umfang verkanna er naumhyggjan alls ráðandi í verkum hans.

Tomas Saraceno frá Argentínu sækir innblástur víða, til lista- og vísindamanna, lífs og liðinna, vísindaskáldsagna og síðast en ekki síst til jarðarinnar og þeirra krafta sem móta lífið og umhverfið. Eitt af því sem einkennir  hann er áhugi hans á þeim kerfum og mynstrum sem hreyfa við og mynda heiminn. Allt frá þeim smæstu í lífríkinu til þeirra ógnarstóru eðlisfræðilegu krafta sem móta alheiminn.

Ljósmyndari mynda af sýningu: 
Pétur Thomsen
Sýningarstjóri/-ar: 
Ingibjörg Jónsdóttir
Boðskort: 

Smelltu á myndirnar til að skoða fleiri myndir á Instagram og póstaðu þínum eigin með því að merkja þær með #myllumerki sýningarinnar.
Mundu að fylgja Listasafni Reykjavíkur á @reykjavikartmuseum.

Viðburðir tengdir sýningu

Hafnarhús
18. janúar 2015 - 15:00