Veldu ár
Ósk Vilhjálmsdóttir: Tígrisdýrasmjör
Á síðustu árum hefur Listasafn Reykjavíkur leitast við að tengjast almenningsrými borgarinnar og efna til þjóðfélagslegrar umræðu innan veggja safnsins. Ósk Vilhjálmsdóttir er sjötti listamaðurinn sem gerir sérstaka innsetningu í A-sal Hafnarhússins með þetta að leiðarljósi.
Um innsetningu sína segir Ósk: „Á botninum og hlaupum í hringi. Bítum í skott. Erum munstruð á skip sem hangir fast á einkennilegum stað. Er þetta ljóslogandi gróðurhús. Eða tjald í hauströkkri, er einhver þarna? Við höfum alltaf verið á þessu skipi. Það hefur alltaf hangið þarna. Inni í því rúmast dýrin og mennirnir, heill heimur.”
Smelltu á myndirnar til að skoða fleiri myndir á Instagram og póstaðu þínum eigin með því að merkja þær með #myllumerki sýningarinnar.
Mundu að fylgja Listasafni Reykjavíkur á @reykjavikartmuseum.