28. janúar 2018 - 14:00
Myrkraverk: Leiðsögn með Sjón
Staður viðburðar:
Kjarvalsstaðir
Rithöfundurinn Sjón tekur þátt í leiðsögn um sýninguna Myrkraverk með áherslu á verk Alfreðs Flóka.
Á sýningunni eru verk listamanna sem hafa fengið innblástur úr þjóðsögum og ævintýrum eða skapað sinn eigin huliðsheim. Hvort tveggja endurspeglar mannlega tilvist, samskipti, tilfinningar og hugarástand.
Sýningin er uppfull af dularfullum og spennandi verkum sem kveikja á ímyndunaraflinu einmitt á myrkasta tíma ársins.
Hér mætast ólíkar kynslóðir listamanna:
Alfreð Flóki (1938–1987)
Ásta Sigurðardóttir (1930-1971)
Jóhanna Bogadóttir (1944)
Kristinn Pétursson (1896–1981)
Sigga Björg Sigurðardóttir (1977)
Sigurður Ámundason (1986)
Aðgöngumiði á safnið gildir.
Sýning:
Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.