30. september 2016 - 21:00

Spurt & svarað: Richard Mosse, Trevor Tweeten, Ben Frost og John Holten

Richard Mosse
Staður viðburðar: 
Hafnarhús

The Enclave, kvikmynda- og hljóðinnsetning írska listamannsins Richard Mosse hefur vakið verðskuldaða athygli síðan hún var frumflutt á Feneyjatvíæringnum árið 2013. Mosse, kvikmyndatökumaðurinn Trevor Tweeten og tónskáldið Ben Frost dvöldu meðal vopnaðra uppreisnarmanna í Kongó og söfnuðu efni í 40 mínútna verk sem lætur engan ósnortinn. Sýningin verður opnuð í Hafnarhúsinu kl. 20 og munu Mosse, Tweeten, Frost og Holten sitja fyrir svörum kl 21. 

Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.