Sýningarstjóraspjall: Gunnar B. Kvaran
Gunnar B. Kvaran sýningarstjóri fjallar um sýninguna YOKO ONO: EIN SAGA ENN...
Yoko Ono er leiðandi myndlistarmaður á sviði tilrauna og framúrstefnu. Með verkum sínum hefur hún myndað nýstárleg tengsl við áhorfendur þar sem hún býður þeim að taka þátt í sköpun verkanna. Þá sameinar Yoko Ono tvo heima – hinn austræna og hinn vestræna – sem efla og styrkja hvor annan í samfelldri nýsköpun.
Sýningin YOKO ONO: EIN SAGA ENN... fjallar um það hvernig það er að vera manneskja og hvaða áhrif hver og einn getur haft á frið í heiminum. Friður milli manna og milli þjóða er þema í Listasafni Reykjavíkur og víðar í borginni um þessar mundir og er sýningin á verkum Yoko Ono liður í því þema. Listakonan ferðast í gegnum sjálfa hugmyndina um myndlist, með kraftmiklum félagslegum og pólitískum undirtóni.
Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Menningarkorts Reykjavíkur.