Síðasta sýningarhelgi á Kyrrð
Sýningunni Kyrrð, með verkum listakonunnar Louisu Matthíasdóttur (1917-2000), lýkur sunnudaginn 17. september á Kjarvalsstöðum. Á sýningunni gefst kærkomið tækifæri gefst til að fá yfirsýn yfir feril listakonu sem á einstakan hátt hefur túlkað íslenskt landslag.
Louisa er einn af fremstu listamönnum Íslendinga á sviði málaralistar. Á sýningunni má vel sjá þá breidd sem býr í verkum hennar. Nærumhverfi hennar varð í langflestum tilfellum efniviður verkanna, hvort sem um var að ræða landslag, uppstillingar eða myndir af henni sjálfri. Hún málaði fjöldann allan af sjálfsmyndum sem sýna raunsanna mynd af listakonunni – og eins málaði hún gjarnan vini og vandamenn við leik og störf. Uppstillingar hennar innan af heimilinu málaði hún í hreinum og tærum litum og formum.
Verk hennar hafa yfir sér ákveðna kyrrð og hreinleika sem endurspeglar e.t.v. persónu listakonunnar og yfirbragð. Jafnvel þótt hún byggi mestan hluta ævi sinnar fjarri föðurlandinu málaði Louisa margar myndir af íslensku landslagi og Reykvískum götumyndum auk verka erlendis frá.