Elín Hansdóttir hlýtur styrk úr Listasjóði Guðmundu

Ólöf Kristín Sigurðardóttir, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur, Elín Hansdóttir, myndlistarskona, Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri og Ari Trausti Guðmundsson, bróðir Errós. Ljósmynd: Hildur Inga Björnsdóttir. 

Elín Hansdóttir myndlistarkona er handhafi viðurkenningar úr Listasjóði Guðmundu S. Kristinsdóttur 2017. Borgarstjórinn í Reykjavík, Dagur B. Eggertsson, afhenti Elínu viðurkenninguna í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi í dag, ásamt því að opna sýningu á verkum Errós í safninu. 

Sjóðinn stofnaði Erró til minningar um móðursystur sína, Guðmundu, og er markmið hans að styrkja listakonur með því að veita framlag til viðurkenningar og eflingar á listsköpun þeirra. Viðurkenningunni fylgir peningaupphæð sem í ár er 750.000 kr.

Elín Hansdóttir er fædd árið 1980. Hún lauk myndlistarnámi við Listaháskóla Íslands árið 2003 og framhaldsnámi í Berlín árið 2006. 

Elín hefur á stuttum og öflugum ferli fengist við flesta þá miðla sem listamenn samtímans vinna í. Skemmst er að minnast sýningarinnar UPPBROT í Ásmundarsafni Listasafns Reykjavíkur á síðasta ári en þar voru verk hennar sýnd ásamt skúlptúrum Ásmundar Sveinssonar. Skynjun mannsins og upplifun á umhverfinu er viðfangsefni hennar og segja má að hún heilli áhorfandann og rugli með blekkingum og sjónhverfingum.

Verk Elínar hafa verið sýnd á öllum helstu sýningarstöðum hérlendis og víða erlendis m.a. í Den Frie í Kaupmannahöfn, Higher Atlas á tvíæringnum í Marrakesh, Marokkó, Frieze Projects á Frieze listasýningunni í London og í KW samtímalistamiðstöðinni í Berlín. Á meðal þess sem Elín er að fást við þessa dagana eru sýningar á myndlistarhátíðinni Sequences sem nú stendur yfir í Reykjavík og einnig verður á næstu vikum málað verk eftir hana á vegg á húsnæði Réttarholtsskóla. 

Þær myndlistarkonur sem áður hafa fengið viðurkenningu úr Listasjóði Guðmundu eru:
Ólöf Nordal (1998), Finna Birna Steinsson (1999), Katrín Sigurðardóttir (2000), Gabríela Friðriksdóttir (2001), Sara Björnsdóttir (2002), Þóra Þórisdóttir (2003), Guðrún Vera Hjartardóttir (2004), Hekla Dögg Jónsdóttir (2006), Hulda Stefánsdóttir (2008), Margrét H. Blöndal (2009), Sara Riel (2010), Þórdís Aðalsteinsdóttir (2011), Ósk Vilhjálmsdóttir (2012), Guðný Rós Ingimarsdóttir (2013), Ásdís Sif Gunnarsdóttir (2014), Sirra Sigrún Sigurðardóttir (2015) og Hildigunnur Birgisdóttir (2016).

Listasjóður Guðmundu er sjálfseignarstofnun í vörslu borgarsjóðs Reykjavíkur. Umsjón með sjóðnum hafa Reykjavíkurborg og Errósafn. Stjórn sjóðsins skipa safnstjórar Listasafns Reykjavíkur, Listasafns Íslands og Listasafnsins á Akureyri.

Listasafn Reykjavíkur óskar Elínu Hansdóttur til hamingju með viðurkenninguna.