Kvikmyndadagskrá: Concerning Violence
Í tengslum við sýninguna Tak i lige måde: Samtímalist frá Danmörku sem nú stendur yfir í Hafnarhúsi býður Listasafn Reykjavíkur upp á dagskrá sem kallast á við efni sýningarinnar.
Þar eru verk fjögurra listamanna sem fjalla hver með sínum hætti um nýlendustefnu, fólksflutninga, þjóðarsjálfsmynd og landamæri.
Laugardaginn 7. apríl kl 14.00 segja tveir listamenn sýningarinnar frá verkum sínum og sunnudaginn 8. apríl eru sýndar þrjár heimildarmyndir, Concerning Violence kl. 13.00, Sumé - the Sound of a Revolution kl. 14.30 og We Carry It Within Us – fragments of a shared colonial past kl. 15.45.
Sýningin og dagskráin eru hluti af aldarafmælishátíð fullveldis Íslands.
Concerning Violence er heimildamynd frá árinu 2014 eftir Göran Olsson.
Myndin fjallar um þjóðernis- og sjálfstæðishreyfingar í Afríku á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar sem ögruðu valdi hvíta minnihlutans og herraþjóðanna.
Myndin er byggð á ritgerðinni Concerning Violence eftir Frantz Fanon sem kom út 1961 í bókinni The Wretched of the Earth.
Kvikmyndin er samframleiðsla milli Svíþjóðar, Finnlands, Danmerkur og Bandaríkjanna. 85 mín.
Aðgöngumiði á safnið gildir.