27. apríl 2019 - 15:00
Hringur, ferhyrningur og lína
Staður viðburðar:
Kjarvalsstaðir
Heba Helgadóttir og Ingibjörg Sigurjónsdóttir, sýningarstjórar sýningarinnar Hringur, ferhyrningur og lína á Kjarvalsstöðum, ræða við gesti um verkin á sýningunni, feril Eyborgar Guðmundsdóttur og fleira.
Sýningunni lýkur daginn eftir.
Eyborg Guðmundsdóttir (1924-1977) var sérstæður listamaður í íslenskum listheimi.
Verk hennar byggja á fyrirmyndum geómetrískrar abstraktlistar þar sem sjónræn áhrif reglubundinna forma eru megináherslan, stíll sem kenndur er við op-list (e. optical).
Þetta er fyrsta yfirlitssýning á verkum Eyborgar.
Ferill hennar spannaði fimmtán ár, en hún náði að þróa persónulegt myndmál sem einkenndist af einföldum formum og sjónarspili.
Aðgöngumiði á safnið gildir.
Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.