23.04.2019
Listaverk vikunnar: Fyssa
Fjórða listaverk vikunnar er Fyssa eftir Rúrí frá 1995. Verkið er staðsett í Grasagarðinum og verður gangsett á sumardaginn fyrsta, fimmtudag 25. apríl kl. 13.00.
Grunnhugmynd verksins byggist á tengingu við náttúruöflin á Íslandi. Hægt er að líkja verkinu við jörð sem rifnar svo sprungur og gjár myndast. Vatn safnast í gjár, frýs í glufum og klýfur í sundur björg. Listaverkið stendur að hluta til upp úr og að hluta til niður í jörðina og myndar gjá en einnig breiðir hluti þess úr sér á yfirborðinu. Vatnsrennslið er síbreytilegt líkt og í náttúrunni þannig að ásýnd verksins breytist stöðugt og hljóðið sem berst frá verkinu einnig vegna mismunandi þrýstings í vatnsbununum.