Listaverk vikunnar: Móðir og barn

Listaverk vikunnar: Móðir og barn

Listaverk vikunnar er Móðir og barn frá 1979 eftir Tove Ólafsson í tilefni af mæðradeginum 12. maí. Verkið er staðsett við Kvennadeild Landspítalans.

Höggmyndin var afmælisgjöf Reykjavíkur til Fæðingarheimilisins. Verkið er raunsætt sem nær að fanga augnablikið á einlægan og fallegan hátt. Móðirin er sterkleg og hefur allt sem barnið þarf til að þrífast fyrstu æviárin, móðurlega ást, sem og styrk til að verja barnið fyrir umheiminum. Það er enginn hávaði í myndum Tove heldur fegurð hins formræna og samþjappaða einfaldleika.