Listaverk vikunnar: Tákn

Listaverk vikunnar: Tákn. Ljósmynd: Hildur Inga Björnsdóttir.

Listaverk vikunnar er Tákn eftir Steinunni Þórarinsdóttur sem sett hefur verið upp á þaki Arnarhvols við Ingólfsstræti í Reykjavík í tilefni af ári listar í almannarými.

Steinunn Þórarinsdóttir hefur unnið fjölda verka í almannarými hérlendis sem erlendis og það hefur verið stór hluti af hennar listrænu starfsemi alla tíð. Um er að ræða 11 fígúrur úr steyptu áli sem Steinunn vann á árunum 2015-2017 – upphaflega fyrir sögusafn þýska hersins í Dresden.

Tákn var sett upp á safnabygginguna í Dresden sem áður hýsti vopnabúr þýska hersins. Þar höfðu staðið fígúrur í anda hernaðar en þeim var stolið í stríðinu árið 1943 og hafa aldrei fundist þrátt fyrir töluverða leit.

Uppsetningin verksins hlaut menningarstyrk Borgarsjóðs og er jafnframt styrkt af Vélsmiðjunni Héðni og BM Vallá og unnin í góðu samstarfi við fjármála- og efnahagsráðuneytið sem hefur aðsetur í húsinu.