Listaverk vikunnar: Móðir mín í kví, kví
Listaverk vikunnar er Móðir mín í kví, kví eftir Ásmund Sveinsson frá 1943. Verkið er staðsett við Seljartjörn í Seljahverfi Breiðholti. Afsteipu af verkinu úr bronsi er að finna í Ásmundargarði.
Ásmundur Sveinsson sótti meðal annars innblástur í þjóðsögur í verkum sínum og slíkar tengingar er að finna í verkinu Móðir mín í kví, kví. Verkið sýnir útborið og afturgengið barnið birtast móður sinni og bjóða henni „dulu að dansa í“. Verkið hefur einföld form þar sem ekki er að finna smáatriði í líkama móður og barns þar til eftir stendur það sem nægir til þess að koma inntaki verksins til skila. Verkið sýnir móðir í angist og látið barn hennar sem birtist henni.
Árið 2019 er ár listar í almenningsrými hjá Listasafni Reykjavíkur. Hlaðið niður snjallforriti safnsins, Útilistaverk í Reykjavík, ókeypis fyrir Android og IOS.