Veldu ár

2024 (7)
2023 (21)
2022 (16)
2021 (21)
2020 (21)
2019 (27)
2018 (19)
2017 (21)
2016 (18)
2015 (20)
2014 (19)
2013 (17)
2012 (17)
2011 (22)
2010 (26)
2009 (25)
2008 (24)
2007 (26)
2006 (14)
2005 (16)
2004 (24)
2003 (32)
2002 (18)
2001 (20)
2000 (19)
1999 (13)
1998 (11)
1997 (14)
1996 (17)
1995 (17)
1994 (17)
1993 (22)
1992 (27)
1991 (24)
1990 (24)
1989 (25)
1988 (38)
1987 (38)
1986 (26)
1985 (28)
1984 (34)
1983 (28)
1982 (30)
1981 (26)
1980 (27)
1979 (21)
1978 (23)
1977 (21)
1976 (24)
1975 (19)
1974 (11)
1973 (11)
27.03.2020
30.04.2020

Liðsmenn

  • Liðsmenn

Ný sýning í forsölum Kjarvalsstaða hefur litið dagsins ljós! Skúlptúrum hefur verið komið fyrir út við glugga hússins sem snúa út að Klambratúni. Vegfarendur geta því notið sýningarinnar án þess að fara inn, enda er lokað vegna samkomubanns. 

Sýningin Liðsmenn dregur nafn sitt af verki Hörpu Björnsdóttur frá árinu 1999. Það er eitt verka þeirra sex listamanna sem eiga verk á sýningunni og valin voru úr safneign Listasafns Reykjavíkur. 

Liðsmenn Hörpu eru tólf, bera hver og einn sitt einkennistákn og mynda hring á gólfinu. Verkið minnir á náttúrudýrkun fyrri tíma og er einkar viðeigandi nú þegar sól hefur tekið að hækka á lofti.

Önnur verk eru eftir Brynhildi Þorgeirsdóttur, Harald Jónsson, Hrein Friðfinnsson, Ólöfu Nordal og Sigurð Guðmundsson. 

Með þessu framtaki vill safnið koma til móts við eitt af hlutverkum sínum sem er að veita aðgang að samtímalistaverkum og bjóða upp á tækifæri til að njóta listaverka þrátt fyrir að öll söfn í landinu séu nú lokuð. 

Smelltu á myndirnar til að skoða fleiri myndir á Instagram og póstaðu þínum eigin með því að merkja þær með #myllumerki sýningarinnar.
Mundu að fylgja Listasafni Reykjavíkur á @reykjavikartmuseum.