28. júní 2020 - 14:00

Leiðsögn sýningarstjóra: Edda Halldórsdóttir

Edda Halldórsdóttir
Staður viðburðar: 
Kjarvalsstaðir

Edda Halldórsdóttir sýningarstjóri verður með leiðsögn um sýninguna Jóhannes S. Kjarval: Hér heima á Kjarvalsstöðum.

Í landslagsmyndum sínum birti Kjarval íslenska náttúru á gjörólíkan hátt en áður hafði tíðkast og kenndi landsmönnum að horfa á landið nýjum augum og meta fegurðina sem býr í hrauninu og mosanum við fætur okkar. Kjarval skipar stóran sess í íslenskri menningar- og listasögu og hefur veitt síðari kynslóðum listamanna ómældan innblástur. Kjarval málaði víða um land; á Þingvöllum og öðrum stöðum í nágrenni Reykjavíkur, á Snæfellsnesi, Skagaströnd, Austfjörðum og víðar.

Aðgöngumiði á safnið gildir.

Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.