27. ágúst 2020 - 17:00 til 22:00

Fimmtudagurinn langi í ágúst

Fimmtudagurinn langi
Staður viðburðar: 
Hafnarhús
Kjarvalsstaðir

Síðasti fimmtudagur mánaðarins er fimmtudagurinn langi! 

Í sumar býður fjöldi safna og sýningastaða upp á lengdan opnunartíma síðasta fimmtudagskvöld hvers mánaðar. Þá er tilvalið að bregða sér af bæ og skoða fjölbreyttar listasýningar, kíkja við á vinnustofum listamanna, heimsækja listamannarekin rými, gallerí og söfn – og upplifa líflega myndlist í miðborginni!

Dagskrá í Listasafni Reykjavíkur 

Kjarvalsstaðir 
Sýningar: Allt sem sýnist – Raunveruleiki á striga 1970-2020 og Jóhannes S. Kjarval: Hér heima
Leiðsögn um Allt sem sýnist kl. 20.00 
Athugið að vegna fjöldtakmarkana er skráning nauðsynleg á listasafn@reykjavik.is

Klambrar Bistro 
Súpa og vínglas kr. 2.500
Happy Hour frá kl. 17-19.00

Hafnarhús 
Sýningar: Gilbert & George: The Great Exhibition og Erró: Sæborg. Tvær leiðsagnir um sýninguna, kl. 17.00 og kl. 20.00 þar sem ​sérfræðingar safnsins leiða gesti í allan sannleik um listsköpun tvíeykisins Gilberts & George.
Athugið að vegna fjöldtakmarkana er skráning nauðsynleg á listasafn@reykjavik.is

Ókeypis aðgangur frá kl. 17-22.00.

Tenglar 
Fimmtudagurinn langi á Facebook