12. september 2020 - 13:00

Leikum að list: Fjölskyldudagskrá

Leikum að list: Fjölskyldudagskrá
Staður viðburðar: 
Ásmundarsafn

Fjölskyldudagkrá þar sem hver fjölskylda fær sér vinnustöð með skemmtilegum verkefnum undir leiðsögn safnkennara í tengslum við sýningu Ásmundar Sveinssonar. Viðburðurinn fer fram innan- og utandyra. Aðeins 5 fjölskyldur komast að hverju sinni.

Athugið að vegna sóttvarna og fjarlægðartakmarkana er í vetur er nauðsynlegt að hver fjölskylda skrái sig í gegnum bókunarkerfi safnsins: 
Skráning fjölskyldu 12.09.20

Ef uppbókað er á viðburðinn er hægt að skrá sig á biðlista á fraedsludeild@reykjavik.is, þar sem kemur fram heiti viðburðar, nafn og símanúmer.

Aðgöngumiði á safnið gildir, en ókeypis fyrir börn fram til 18 ára aldurs. Dagskráin er miðuð að því að börn komi í fylgd fullorðinna og að heimsóknin verði skemmtileg og skapandi samvera milli kynslóða.
 

Leikum að list er yfirskrift fjölskyldudagskrár Listasafns Reykjavíkur. Þar eru börn sérstaklega boðin velkomin í safnið ásamt foreldrum sínum til þess að skoða og upplifa myndlist í gegnum leiki og skemmtilegar umræður. Boðið er upp á fjölskylduleiðsagnir sem sniðnar eru að yngri áhorfendum um sýningar í öllum safnhúsunum. Þá eru listasmiðjur fyrir börn og fjölskyldur þeirra þar sem gaman er að skapa sín eigin listaverk saman eftir heimsókn í sýningarsalina. 

Við Leikum að list reglulega allt árið um kring og það er um að gera að fylgjast með á dagskrársíðu safnsins. Fjölskyldurýmin eru síðan alltaf opin, Hugmyndasmiðjan á Kjarvalsstöðum, Stofa í Hafnarhúsinu og Augnablik í Ásmundarsafni (en Ásmundarsafn verður þó lokað frá 1. október 2020 fram yfir áramót, vegna viðhalds).

Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.