24. september 2020 - 10:00 til 18. október 2020 - 23:00

Kolbrún Þóra Löve: Nebulous Heaps

Kolbrún Þóra Löve: Nebulous Heaps
Staður viðburðar: 
Vefurinn, www.nebulousheaps.com

Nebulous Heaps er vefinnsetning og jafnframt útgáfuverk. Verkið er afrakstur samtals við heimspekinginn Timothy Morton og beinir sjónum áhorfenda að óaðgengileika hluta, takmarkaðri skynjun mannsins og sambandi hans við umhverfi sitt. Lifandi og dauðir hlutir umlykja okkur og verða til þess að við gerum okkur grein fyrir því að við erum meira en við. Hvernig tengist tunga eðlu taugaboðum mannsheilans? Verður lífræn hrúga einhvern tímann að manni? Þarf náttúran að vera til?
 
Verkið má nálgast hér: www.nebulousheaps.com
 
Kolbrún Þóra Löve (f. 1989) vinnur þvert á miðla á mörkum listar og hönnunar, og fjallar oftar en ekki um óstöðug mörk mennsku, hluta og umhverfis. Hún útskrifaðist með BFA gráðu frá Parsons School of Design árið 2012 og með MA gráðu frá Sandberg Instituut árið 2017. 

Listasafn Reykjavíkur efnir á haustdögum öðru sinni til samsýningar á nýrri myndlist í almannarými. Verk átta listamanna birtast á fjölbreyttan og nýstárlegan hátt víða um Reykjavík og í því sameiginlega rými sem tækni samtímans býður upp á. Um er að ræða gjörninga, inngrip og uppákomur af ýmsu tagi sem kallast á við samfélagslegt rými, opinveran vettvang, stræti, torg og byggingar sem við deilum í sameiningu. Verkin eru meira og minna unnin í óáþreifanlega miðla; Haustlaukarnir skjóta rótum víða og spretta upp við óvæntar aðstæður. Viðfangsefni þeirra átta listamanna sem taka þátt í sýningunni eru fjölbreytt en eiga það öll sameiginlegt að varpa ljósi á eða spyrja spurninga um daglegt umhverfi íbúa borgarinnar og gesta hennar. Þar er fjallað um mörk einka- og almenningsrýmis, eignarhald og frelsi auk þess sem reynt er að fá fólk til þess að staldra við, líta í kringum sig og sjá umhverfið í nýju ljósi. Loks smitast óhjákvæmilega inn í verkin þær breytingar sem orðið hafa á þessu ári og snúa að daglegum samskiptum og venjum á tímum farsóttar. Sum verk eru aðeins flutt einu sinni á meðan önnur eiga sér lengri eða tíðari tilvist. Dagskrá sýningarinnar má kynna sér í sýningarskrá, á samfélagsmiðlum safnsins eða dagskrársíðu þess.

Sýning: