4. september 2022 - 14:00

Spor og þræðir: Leiðsögn listamanns

Kristín Gunnlaugsdóttir myndlistarmaður
Staður viðburðar: 
Kjarvalsstaðir

Listakonan Kristín Gunnlaugsdóttir verður með leiðsögn á sýningunni Spor og þræðir á Kjarvalsstöðum, sunnudaginn 4. september kl. 14.00.

Skráning HÉR

Spor og þræðir er sýning á verkum íslenskra samtímalistamanna sem sauma út eða nýta nál og þráð sem verkfæri við listsköpun sína. Saumnálin hefur alla tíð verið vinsælt tól til listsköpunar og listskreytinga. Hún hefur einkum verið í höndum kvenna sem hafa lagt rækt við að viðhalda gömlum hefðum í handverki sem og þróað nýjar og skapandi leiðir til úrvinnslu með nál og þráð. Útsaumur var ásamt útskurði langalgengasti miðill listamanna á Íslandi fram að 20. öld. Þá vék hann tímabundið fyrir annarri tækni en gekk í endurnýjun lífdaga sem hluti af kvenréttindabaráttu 8. áratugarins og þróun femínískrar myndlistar. Í dag sjáum við enn fjölbreyttari merki um endurkomu útsaums inn á vettvang myndlistar, ekki bara hér á landi, heldur í alþjóðlegri samtímalist. Hvað veldur þessum aukna áhuga og sýnileika? Hvað knýr samtímalistamenn til þess að taka sér nál í hönd við gerð verka sinna?

Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.