20. ágúst 2022 - 20:00

Menningarnótt – Leiðsögn sýningarstjóra: Andlit úr skýjum

Leiðsögn sýningarstjóra: Andlit úr skýjum. Ljósmynd: Hildur Inga Björnsdóttir.
Staður viðburðar: 
Kjarvalsstaðir

Aðalsteinn Ingólfsson sýningarstjóri verður með leiðsögn um sýninguna Andlit úr skýjum – mannamyndir Jóhannesar S. Kjarvals á Kjarvalsstöðum laugardaginn 20. ágúst kl. 20.00.

Á gjörvöllum ferli sínum vann Kjarval mannamyndir og á þessari yfirgripsmiklu sýningu fá gestir að kynnast þeim. Hér eru olíumálverk af þekktu fólki frá öllum tímabilum, vatnslitamyndir af ítölsku fólki frá 1920, úrval blek- og túskteikninga frá 1928-30, rauðkrítarmyndir af fjölskyldu og nánum vinum og lítt þekktar andlitsmyndir frá seinni árum hans. Loks má geta um hópmyndir hans sem aldrei hafa verið sýndar saman. Á sýningunni eru einnig allar fáanlegar sjálfsmyndir Kjarvals. Andlitsmyndir Kjarvals hafa skipað veglegan sess á yfirlitssýningum á verkum listamannsins og samsýningum af ýmsu tagi en til þessa hefur sjónum ekki verið beint að þessum myndum sérstaklega. 

Verð viðburðar kr: 
0