Veldu ár

2024 (7)
2023 (21)
2022 (16)
2021 (21)
2020 (21)
2019 (27)
2018 (19)
2017 (21)
2016 (18)
2015 (20)
2014 (19)
2013 (17)
2012 (17)
2011 (22)
2010 (26)
2009 (25)
2008 (24)
2007 (26)
2006 (14)
2005 (16)
2004 (24)
2003 (32)
2002 (18)
2001 (20)
2000 (19)
1999 (13)
1998 (11)
1997 (14)
1996 (17)
1995 (17)
1994 (17)
1993 (22)
1992 (27)
1991 (24)
1990 (24)
1989 (25)
1988 (38)
1987 (38)
1986 (26)
1985 (28)
1984 (34)
1983 (28)
1982 (30)
1981 (26)
1980 (27)
1979 (21)
1978 (23)
1977 (21)
1976 (24)
1975 (19)
1974 (11)
1973 (11)
15.01.2010
14.03.2010

Erró: Geimfarar

Upptekinn af útrás mannsins út í himingeiminn beindist athygli Errós á áttunda áratugnum sérstaklega að geimferðum og geimförum. Eftir að hafa gert nokkrar tilraunir með geimfara sem myndefni fékk hann tækifæri til að heimsækja eina af bækistöðvum NASA í Houston í Bandaríkjunum. Fullur ákafa og aðdáunar drakk hann í sig allar þær upplýsingar og myndefni sem hann komst yfir auk þess sem hann fylgdist með æfingum geimfara og fékk leyfi til að íklæðast geimfarabúningi.

Á árunum 1974 til 1981 skapaði Erró fjölda samklippimynda, sem síðar áttu eftir að verða að málverkum, þar sem hann tefldi saman annars vegar myndum af geimförum, geimfaratækjum og fjarlægum plánetum og hins vegar tilvísunum í þekkt verk úr listasögunni eftir listamenn á borð við Rogier Van der Weyden, Ingres og Boucher og vísindaskáldsagnateiknimyndasögur úr samtímanum.

Geimsería Errós er hvorki ein né einföld saga heldur samstæða fjölda ólíkra, margræðra þátta og hlutatákna sem í heild sinni skapar lagskipt og fljótandi merkingarsvið. Geimfarar og geimskutlur, orðaleikir, andstæður, hliðstæður, goðsagnir og trúarbrögð, vísindi og listir og afstæði í tíma og rúmi framkalla hjá áhorfendum hugrenningar um framtíðarsýn og ferðalög í tíma og rúmi, karlmennsku, kvenleika og ástleitni, mögulega sigra, hvatir og langanir sem eru í senn skáldskapur og raunveruleiki.

 

 

Listamaður/-menn: 
Ljósmyndari mynda af sýningu: 
Pétur Thomsen
Sýningarstjóri/-ar: 
Danielle Kvaran
Myndir frá opnun: 
Viðburðir tengdir sýningu: 
Sunnudaginn 14. nóvember verður leiðsögn um sýninguna Erró - Klippimyndir og úrval þeirra verka sem valin voru til sýningar úr klippimyndasamkeppninni. Á sýningunni eru til sýnis 130 klippimyndir sem Erró hefur gefið safninu frá árinu 1989, en safnið á alls 472 klippimyndir eftir listamanninn.

Smelltu á myndirnar til að skoða fleiri myndir á Instagram og póstaðu þínum eigin með því að merkja þær með #myllumerki sýningarinnar.
Mundu að fylgja Listasafni Reykjavíkur á @reykjavikartmuseum.