Veldu ár

2024 (7)
2023 (21)
2022 (16)
2021 (21)
2020 (21)
2019 (27)
2018 (19)
2017 (21)
2016 (18)
2015 (20)
2014 (19)
2013 (17)
2012 (17)
2011 (22)
2010 (26)
2009 (25)
2008 (24)
2007 (26)
2006 (14)
2005 (16)
2004 (24)
2003 (32)
2002 (18)
2001 (20)
2000 (19)
1999 (13)
1998 (11)
1997 (14)
1996 (17)
1995 (17)
1994 (17)
1993 (22)
1992 (27)
1991 (24)
1990 (24)
1989 (25)
1988 (38)
1987 (38)
1986 (26)
1985 (28)
1984 (34)
1983 (28)
1982 (30)
1981 (26)
1980 (27)
1979 (21)
1978 (23)
1977 (21)
1976 (24)
1975 (19)
1974 (11)
1973 (11)
05.02.2011
25.04.2011

Feneyjar hér Feneyjar þar

Opin og fræðandi listsmiðja fyrir fjölskylduna sem sett er upp í tengslum við Sýningu sýninganna: Ísland í Feneyjum í 50 ár og stendur yfir á þessum tíma. La Biennale di Venezia eða Feneyjatvíæringurinn er stundum nefndur Sýning sýninganna, enda elstur allra tvíæringa og einn af heimsins merkustu myndlistarviðburðum. Fyrsta sýningin var skipulögð árið 1895 og hefur tvíæringurinn verið haldinn reglulega síðan. Frá því að Ísland hóf þátttöku í Feneyjatvíæringinum árið 1960 hafa 22 íslenskir listamenn sýnt verk sín á þessum virta listaviðburði. Margir helstu listamenn þjóðarinnar hafa tekið þátt, allt frá Ásmundi Sveinssyni, Kjarval og Þorvaldi Skúlasyni til Rúrí, Gabríelu og Ragnars Kjartanssonar. Á Sýningu sýninganna á Kjarvalsstöðum gefst í fyrsta skipti tækifæri til að sjá verk íslensku Feneyjafaranna samankomin á einum stað og þá þróun og breytingar sem hafa orðið í þátttökusögu Íslendinga á þessum 50 árum.

Ljósmyndari mynda af sýningu: 
Pétur Thomsen
Myndir frá opnun: 
Viðburðir tengdir sýningu: 
Andrúmsloft Feneyja svífur yfir Kjarvalsstöðum þessa dagana en á sunnudaginn verður lögð áhersla á leik og leiðsögn fyrir fjölskylduna í smiðju sem ber yfirskriftina Feneyjar hér og Feneyjar þar. Safnast er saman í smiðjunni við gríðarstóran gondól þar sem börn og fullorðnir geta fengið útrás fyrir sköpunarkraftinn með því að teikna á póstkort, leika sér með ofurgrímu eða vinna á verkefnablað sem tengist sýningunni. Sagt verður frá Feneyjartvíæringnum og fræðst verður um listamenn og listaverk þeirra á Sýningu sýninganna, Ísland í Feneyjum í 50 ár sem nú er uppi í öllum rýmum Kjarvalsstaða

Smelltu á myndirnar til að skoða fleiri myndir á Instagram og póstaðu þínum eigin með því að merkja þær með #myllumerki sýningarinnar.
Mundu að fylgja Listasafni Reykjavíkur á @reykjavikartmuseum.