Ókeypis fimm daga ritsmiðja fyrir 8–12 ára
Föstudag 23. október–þriðjudags 27. október kl. 13-16
Þorirðu að horfast í auga við þinn mesta ótta og skrifa alvöru hrollvekju sem fær hárin til að rísa?
Listasafn Reykjavíkur býður upp á ritsmiðju fyrir 8–12 ára börn sem stendur yfir í fimm daga í Hugmyndasmðjunni á Kjarvalsstöðum. Á námskeiðinu verða lesnar draugasögur, skoðað hvernig sögurnar eru uppbyggðar og þátttakendur aðstoðaðir við að skrifa sína eigin hrollvekju. Námskeiðinu lýkur á uppskeruhátíð þar sem fjölskyldum höfundanna er boðið að koma og hlýða á afraksturinn.
Ritsmiðjan er haldin í tengslum við sýninguna Út á spássíuna – textar, skissur, og pár í list Kjarvals sem nú stendur yfir á Kjarvalsstöðum. Á sýningunni er Kjarval ekki bara skoðaður sem myndlistarmaður heldur líka sem rithöfundur og skáld.
Markús Már Efraím hefur umsjón með ritsmiðjunni. Hann ritstýrði hrollvekjusafninu Eitthvað illt á leiðinni er sem kom út í vor en höfundar bókarinnar eru börn á aldrinum átta til tíu ára.
Þátttaka er ókeypis en nauðsynlegt en þar sem fjöldi barna er takmarkaður er nauðsynlegt að skrá sig fyrir fram á netfangið: fraedsludeild@reykjavik.is
Ljósmynd: Markús Már Efraím