18.03.2016
Friðarsúlan lýsir fram að páskum
Kveikt verður á Friðarsúlunni í Viðey kl. 20:00 sunnudaginn 20. mars, á giftingarafmæli Johns Lennons og Yoko Ono. Þau gengu í hjónaband árið 1969 og vörðu hveitibrauðsdögum sínum í hjónarúminu í mótmælaskyni við stríðið í Víetnam. Ljósgeisla friðarsúlunnar er einmitt ætlað að minna fólk á frið og mun hann lýsa upp kvöldhimininn á vorjafndægri, 20. mars, þegar sólin er beint yfir miðbaug jarðar og dagur og nótt um það bil jafnlöng um alla jörð. Friðarsúlan mun loga til 26. mars, laugardaginn fyrir páska.
Ljós Friðarsúlunnar sést vel á höfuðborgarsvæðinu en einnig má sjá hana í beinni útsendingu hér.