Málþing og sýningarlok á RÍKI – flóra, fána, fabúla
Listasafn Reykjavíkur og Náttúruminjasafn Íslands standa að umræðufundi í tengslum við sýninguna RÍKI – flóra, fána, fabúla sem staðið hefur í sumar í Hafnarhúsinu og er senn á enda. Listamenn sem eiga verk á sýningunni deila hugleiðingum sínum um hlutverk og möguleika myndlistar þegar kemur að áhuga og ábyrgð mannsins á lífríki jarðar. Fulltrúar safnanna taka þátt í fundinum og velta upp spurningum um samlegð lista og raunvísinda.
Að samræðum loknum er gestum boðið upp á leiðsögn Markúsar Þórs Andréssonar sýningarstjóra um sýninguna en þetta er jafnframt síðasti sýningardagur.
Þátttakendur:
Anna Fríða Jónsdóttir, myndlistarmaður
Dr. Hilmar J. Malmquist, líffræðingur og forstöðumaður Náttúruminjasafns Íslands
Markús Þór Andrésson, sýningarstjóri og verkefnisstjóri dagskrár í Listasafni Reykjavíkur
Olga Soffía Bergmann, myndlistarmaður
Unndór Egill Jónsson, myndlistarmaður
Á sýningunni RÍKI – flóra, fána, fabúla eru tengsl manna við hina lifandi náttúru til skoðunar. Sýningin er viðamikil og veitir áhorfendum innsýn í listsköpun ólíkra listamanna með verkum frá síðustu árum og áratugum, glænýjum verkum sem og öðrum eldri úr safneign Listasafns Reykjavíkur.
Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Menningarkorts Reykjavíkur.