Minnismerki um Louisu Matthíasdóttur við Höfða

Temma Bell og Dagur B. Eggertsson

Reykjavíkurborg hefur sett upp menningarmerki við Höfða til heiðurs myndlistarkonunni Louisu Matthíasdóttur. Louisa var fædd þann 20. febrúar árið 1917 og var merkið afhjúpað á 100 ára fæðingarafmæli listakonunnar.

Louisa flutti í Höfða ásamt foreldrum sínum Matthíasi Einarssyni lækni og konu hans Ellen Einarsson. Louisa var átta ára á þeim tíma og fjölskyldan bjó þar frá 1924 til 1937.
 
Louisa byrjaði snemma að teikna og mála og hafði næmt auga fyrir hinu nálæga og hinu einfalda. Hún eignaðist félaga í hópi ungs fólks sem hittist gjarnan í Unuhúsi, en þar var athvarf skálda og listamanna í Reykjavík á fyrri hluta tuttugstu aldar.
 
Hún fór til listnáms í Danmörku og síðar til Parísar en sneri aftur heim árið 1939. Árið 1942 fór hún til New York til frekara myndlistarnáms og þar kynntist hún eiginmanni sínum listmálaranum Leland Bell. Þau settust að í borginni og eignuðust eina dóttur Temmu Bell.
 
Louisa vakti athygli í New York fyrir málverk sem fönguðu nær umhveri hennar á einstaklega næman hátt. Hún málaði myndir af fjölskyldunni, heimilisdýrunum og þegar líða tók á ferilinn málverk sem sýndu minningar frá Íslandi. Einfaldleiki verkanna og einlægni listakonunnar vöktu athygli listgagnrýnenda í hringiðu listalífs stórborgarinnar. Louisa tilheyrði hópi virtra listamanna vestanhafs og hélt sína fyrstu einkasýningu í Jane Street Galleríinu árið 1948 og árið 1958 í Tanager Gallery, auk þess sem hún tók þátt í fjölda samsýninga.
 
Í áraraðir sýndi Louisa ekki mikið hér á landi en árið 1993 var efnt til sýningar á verkum hennar á Kjarvalsstöðum og hún var einnig meðal 28 íslenskra listamanna sem áttu verk á sýningunni íslensk málverk á 20. öld í Hong Kong og síðar í Peking árið 1998. Hún átti einnig verk á sýningu tólf kvenna í Norræna húsinu árið 1998 og það sama ár var fyrsta sýningin á pastelmyndum hennar í Hafnarborg í Hafnarfirði.

Listasafn Reykjavíkur undirbýr nú viðamikla yfirlitssýning á verkum frá ferli listakonunnar sem opnuð verður þann 6. maí næstkomandi í vestursal Kjarvalsstaða. Þar gefst kærkomið tækifæri til að fá yfirsýn yfir feril listakonu sem á einstakan hátt hefur túlkað íslenskt landslag. Sýningarstjóri er Jón Proppé, listheimspekingur.