Allar jólavættir borgarinnar í Hafnarhúsi í desember
Allar jólavættir Reykjavíkurborgar verða búnar að koma sér fyrir í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsi fimmtudaginn 3. desember og ætla að gleðja gesti safnsins í aðdraganda jólanna.
Jólavættunum er ætlað að kynna sérstöðu Reykjavíkurborgar fyrir innlendum og erlendum gestum hennar. Þær birtast jafnframt þann 3. desember á húsveggjum víðsvegar um borgina þar sem þeim verður hampað. Samfara því fer af stað spennandi ratleikur sem nefnist Leitin að jólavættunum sem byggist á að finna vættirnar og svara léttum og skemmtilegum spurningum um þær. Hægt er að nálgast ratleikinn í Hafnarhúsi, á Upplýsingamiðstöð ferðamanna í Aðalstræti og í Ráðhúsi Reykjavíkur og skila skal réttum lausnum á sömu staði fyrir 20. desember. Vegleg verðlaun eru í boði fyrir þann sem sigrar í leiknum og verða úrslitin kynnt þann 21. desember.
Það er því tilvalið fyrir fjölskyldur að koma við í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsi og kíkja á allar jólavættirnar á einum stað og leita síðan að hverri og einni á húsveggjum borgarinnar.