Auglýsingahlé Billboard: Haraldur Jónsson
Dagana 1.-3 janúar 2024 verður Auglýsingahlé á öllum auglýsingaskjáum Billboard á höfuðborgarsvæðinu en þeir eru rúmlega 400 talsins.
Auglýsingahlé er samstarfsverkefni Billboard, Y gallerýs og Listasafns Reykjavíkur. Verkefnið er frábær vettvangur fyrir myndlist í almenningsrými og er því ætlað að lýsa upp skammdegið og gefa borgarbúum tækifæri á að njóta listar um alla borgina.
Síðastliðið haust var efnt til opinnar samkeppni um myndlistarverk í almenningsrými. Er þetta í þriðja sinn sem listsýning Billboard á sér stað og í ár var listamaðurinn Haraldur Jónsson valinn til að sýna verkið Ummyndanir.
Verkið hverfist um ummyndanir kunnuglegra fyrirbæra úr tíðarandanum sem líða síkvikar um loftið þegar heimurinn er tímabundið opinn í báða enda um áramót. Það er skuggsjá sem ofin er úr brotakenndum skilaboðum, hnitum, hugljómunum og óvæntum tilboðum úr undirvitundinni.
Að sýningartíma loknum verður verkið gefið í safneign Listasafns Reykjavíkur.