Gestum fjölgar jafnt og þétt í Listsafni Reykjavíkur!
Tæplega 28 þúsund gestir lögðu leið sína í Listasafn Reykjavíkur í nýliðnum júnímánuði.
Er þetta aukning um rúm 43% frá sama mánuði í fyrra.
Mest er aðsóknin í Hafnarhús við Tryggvagötu en þangað komu tæplega nítján þúsund gestir í júní 2017 sem er aukning um rúm 53% frá árinu áður. Aðsóknin í Ásmundarsafn og á Kjarvalsstaði hefur aukist um tæp 27% miðað við júní í fyrra.
Viðburðir, leiðsagnir og námskeið tengd sýningunum hafa verið vel sótt það sem af er sumri. Í júlí verða tveir sýningatengdir viðburðir í Hafnarhúsinu, fimmtudagskvöldin 6. og 13. júlí. Bryndís Hafþórsdóttir listfræðingur mun fjalla um íslenska samtímamyndlist í alþjóðlegu samhengi og Tómas Örn Tómasson kvikmyndatökumaður mun fjalla um samstarf sitt við Ragnar Kjartansson í gegnum tíðina. Að auki er boðið upp á leiðsagnir bæði á íslensku og ensku í hverri viku um sýningu Ragnars í Hafnarhúsinu.
Starfsfólk Listasafns Reykjavíkur þakkar gestum fyrir góðar viðtökur!