Hallgrímur Helgason á yfirlitssýningu 2024

Hallgrímur Helgason

Við opnun yfirlitssýningarinnar Hekla Dögg Jónsdóttir: 0° 0° Núlleyja laugardaginn 18. nóvember var tilkynnt að næsti listamaður til að taka þátt í yfirlitssýningu á Kjarvalsstöðum verður Hallgrímur Helgason en sýningin verður opnuð að haustlagi árið 2024. Hallgrímur er áttundi listamaðurinn sem valinn er til þátttöku í sýningaröð Listasafns Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum þar sem farið er yfir feril lykilpersóna í íslensku listalífi. Hvert og eitt þeirra er valið með tilliti til einstaks framlags þeirra og sérhæfingar á sínu sviði hvað viðvíkur miðlum, aðferðum og viðfangsefnum. Á sýningunni verða sett fram lykilverk frá ólíkum tímum á ferli listamannsins í Vestursal Kjarvalsstaða og gefin er út vegleg sýningarskrá þar sem fjallað er um ferilinn í samhengi listasögunnar og samtímans.

Hallgrímur Helgason er fæddur í Reykjavík 1959. Hann nam stuttlega við MHÍ og Listaakademíuna í München og hefur starfað og sýnt sem myndlistarmaður frá árinu 1983. Hann hefur haldið yfir 30 einkasýningar heima og erlendis og tekið þátt í yfir 40 samsýningum víða um lönd. Árin 1985-89 var hann búsettur í Boston og New York og árin 1990-96 bjó hann í París. Málverk og teikningar hafa ætíð verið hans miðill og hefur hann á löngum ferli þróað sinn persónulega stíl sem jafnan hefur verið fígúratívur, en flakkað á milli realisma og fantasíu. Í tvo áratugi vann hann mikið með hliðarsjálf sitt, teiknimynda-karakterinn Grim. Verk hans eru meðal annars í eigu Metropolitan Museum of Art, New York, FRAC Poitou-Charentes í Angouleme, Frakklandi, Listasafns Reykjavíkur, Listasafns Íslands, Listasafns Háskólans, Listasafns Kópavogs og Listasafns Ísafjarðar. Árið 2021 hlaut Hallgrímur heiðursorðu Frakka fyrir menningarstörf, Officier de l'ordre des arts et des lettres. Á komandi ári, 2024, mun Hallgrímur sýna verk sín á Nordatlantens brygge í Kaupmannahöfn, Nordatlantisk Hus í Óðinsvéum og í Kompunni á Siglufirði, áður en mið-ferils yfirlitssýning Listasafns Reykjavíkur verður opnuð á Kjarvalsstöðum haustið 2024.

Ljósmynd: © Marco Giugliarelli for Civitella Ranieri Foundation, 2019