Íslandsvitinn lýsir á ný
Árið 2019 er ár listar í almannarými hjá Listasafni Reykjavíkur og er liður í því markmiði safnsins að beina sjónum manna að þeim listaverkum sem við njótum sem hluta af daglegu lífi. Í tilefni af því ætlar safnið að birta myndir og upplýsingar um eitt útilistaverk í viku sem verk vikunnar.
Fyrsta listaverk vikunnar er Íslandsvitinn eftir Claudio Parmiggiani. Glöggir vegfarendur um þjóðveg 1 við Sandskeið hafa tekið eftir því að þar hefur nú um skeið verið myrkur þar sem áður lýsti Íslandsvitinn. Unnið hefur verið að endurbótum á ljósgafa verksins. Tækifæri var nýtt til að skipta yfir í LED tækni sem verður endingarbetri og sparneytnari.
Umhverfislistaverkið Íslandsvitinn var sett upp á Sandskeiði á Hellisheiði á vegum Reykjavíkurborgar í tilefni þess að hún var valin ein af menningarborgum Evrópu árið 2000. Um er að ræða vita, sem ólíkt öðrum vitum stendur inni í landi úr augsýn sjófarenda og jafnframt utan byggðar og alfaraleiða. Hann lýsir stöðugu og viðvarandi ljósi dag og nótt sem beinist í höfuðáttirnar fjórar. Vitinn er hálfgerð þverstæða þar sem hann þjónar ekki hlutverki sínu nema þar sem fólk sér til hans. Listamaðurinn, sem hefur áður reist verk úr alfaraleið í öðrum löndum, sagði í viðtali: „Skáldskapurinn og andspyrna verksins felst í fjarverunni.“