Lausar stöður hjá Listasafni Reykjavíkur
Listasafn Reykjavíkur auglýsir lausar til umsóknar tvær stöður verkefnastjóra í deild sýninga og miðlunar. Um er að ræða störf í 50-100% starfshlutfalli.
Verkefnastjórar starfa við miðlun og fræðslu um sýningar safnsins jafn til almennra safngesta, skólahópa og annarra hópa sem sækja safnið heim. Verkefnastjóri sér um og ber ábyrgð á skipulagi, mótun, þróun og vinnu við fræðslustarf í samráði við yfirmann og samstarfsfólk.
Leitað er að öflugum einstaklingum sem eru tilbúnir til að starfa í kraftmiklum starfshópi. Leitað er að hugmyndaríkum og jákvæðum einstaklingum sem hafa frumkvæði og metnað til að ná árangri í starfi og hafa víðtæka þekkingu á myndlist og hæfni til að miðla til ólíkra hópa.
Helstu verkefni og ábyrgð
Í starfinu felst umsjón og ábyrgð á skipulagi, mótun, þróun og vinnu við fræðslu í safninu. Á meðal verkefna er skipulag og móttaka skólahópa og annarra hópa, leiðsagnir og önnur safnfræðsla fyrir almenna gesti safnsins, ábyrgð á gestastofum og upplýsingagjöf í safnhúsum. Verkefnisstjórar hafa umsjón með þróun og gerð fræðsluefnis, námskeiðahaldi og ýmsum viðburðum og samstarfsverkefnum auk þess sem þeir taka þátt í þróun og framkvæmd fræðsludagskrár safnsins.
Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun á framhaldsstigi á sviði safnsins; í myndlist, listfræði, safnafræði eða listasögu auk menntunar og/eða reynslu á sviði listkennslu eða listmiðlunar.
Reynsla á sviði safnastarfs.
Mjög góð þekking á íslenskri listasögu, góð þekking á íslenskri og alþjóðlegri samtímamyndlist.
Mjög góðir skipulags- og verkefnisstjórnunarhæfileikar.
Mjög góð samskiptafærni á íslensku og ensku og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
Færni og geta til að vinna undir álagi og sinna mörgum viðfangsefnum.
Færni í mannlegum samskiptum og sveigjanleiki.
Metnaður, frumkvæði, hugmyndaauðgi og sjálfstæði í starfi.
Listasafn Reykjavíkur er lifandi og framsækinn vettvangur þar sem tækifæri gefst til að að kynnast fjölbreytileika myndlistar og öðlast dýpri skilning á sögulegu, félagslegu, menningarlegu og listrænu samhengi sköpunarverka listamanna. Safnið er til húsa á þrem stöðum í Reykjavík: í Hafnarhúsi, á Kjarvalsstöðum og í Ásmundarsafni við Sigtún.
Nánar
Umsóknarfrestur er til og með 13. júní 2018.
Launakjör eru skv. kjarasamningum Reykjavíkurborgar við viðkomandi stéttarfélög.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Markús Þór Andrésson, deildarstjóri sýninga og miðlunar, markus.thor.andresson@reykjavik.is, sími 411 6400.
Umsækjendur eru vinsamlega beðnir um að sækja um störfin á vef Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/storf. Umsóknum þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem við búum í. Reykjavíkurborg vinnur gegn mismunun á vinnumarkaði og hvetur innflytjendur, fatlað fólk, hinsegin fólk og fólk á öllum aldri til að sækja um störf hjá borginni.