Listaverk vikunnar: Fjöruverk

Fjöruverk eftir Sigurð Guðmundsson frá 2002.

Listaverk vikunnar er Fjöruverk eftir Sigurð Guðmundsson frá 2002. Verkið er staðsett við Sæbraut.

Verkið samanstendur af allmörgum pússuðum granítsteinum, líkum þeim grjóthnullungum sem fyrir eru í fjörugarðinum meðfram Sæbrautinni. Steinarnir koma frá námum í Svíþjóð og hafa á leið sinni þaðan komið við á vinnustofu listamannsins í Kína  þar sem þeir voru handslípaðir. Þaðan lá leiðin til Íslands og þeim komið endanlega fyrir í haganlegri hleðslu í brimgarðinum við norðurströnd Reykjavíkur í svonefndri Rauðarárvík. Verkið lætur lítið yfir sér í fyrstu og vegfarendur sem eiga leið hjá þurfa að gefa verkinu gaum.

Fjöruverk var hlutskarpast af 147 tillögum í opinni hugmyndasamkeppni um útilistaverk í Reykjavík sem að menningarmálanefnd Reykjavíkurborgar efni til árið 2002. Dómnefndin taldi verkið mjög sérstætt, lifandi og frumlegt og falla vel að uppbyggingu strandlengjunnar sem er hin nýja ásýnd Reykjavíkur. Listamaðurinn hefur látið þau orð falla um keimlíkt verk sem sett var upp í Svíþjóð að ætlun hans sé að draga athygli að því hvað allir og allt sé í raun einstakt ef við bara gefum okkur tíma til að taka eftir því.

Sigurður Guðmundsson (f. 1942) býr og starfar í Reykjavík, Kína og Hollandi. Víða er að finna stórar höggmyndir eftir Sigurð í opnu rými, bæði á Norðurlöndum og Mið-Evrópu. Ferill Sigurðar byggist á grunni konseptlisar þar sem áherslan er á tungumál, hugtök og hugmyndir. Hann vinnur í fjölda miðla, ljósmyndir, höggmyndir, teikningar, grafík og gjörninga, en hefur líka samið tónverk og skrifað bækur.

Árið 2019 er ár listar í almenningsrými hjá Listasafni Reykjavíkur. Hlaðið niður snjallforriti safnsins, Útilistaverk í Reykjavík, ókeypis fyrir Android og IOS.