Listaverk vikunnar: Fýkur yfir hæðir
Listaverk vikunnar er Fýkur yfir hæðir eftir Ásmund Sveinsson frá 1933. Verkið er staðsett við Seljakirkju.
Fýkur yfir hæðir er dæmigert fyrir þá einföldun í formi sem Ásmundur leitaði eftir á fjórða áratugnum. Smáatriðum er smám saman eytt út úr myndinni þar til eftir stendur það eitt sem nægir til að koma inntaki verksins til skila. Heildarsvipur verksins er einfaldaður niður í einn samfelldan formmassa sem sýnir hvernig móðirin beygir sig yfir barnið og skýlir því fyrir vindinum. Með einföldun er ekki átt við að verk Ásmundar hafi verið að þróast í átt að óhlutbundinni list sem kom síðar á ferli hans, heldur var þetta tilraun til að leita að beinskeyttu og skýru myndmáli sem væri þó ekki raunsæislegt eins og klassískar höggmyndir.
Verkið stendur einnig við Hallveigarstaði og í höggmyndagarðinum við Ásmundarsafn.
Ásmundur Sveinsson (1893-1982) er einn af frumkvöðlunum í íslenskri höggmyndalist. Listasafn Reykjavíkur starfrækir safn um verk hans í einni þeirra, Ásmundarsafni í Laugardal. Ásmundur sótti innblástur í íslenskar sagnir og þjóðtrú og í form náttúrunnar. Síðar urðu ýmsar tækninýjungar 20. aldar honum hugleiknar.
Árið 2019 er ár listar í almenningsrými hjá Listasafni Reykjavíkur. Hlaðið niður snjallforriti safnsins, Útilistaverk í Reykjavík, ókeypis fyrir Android og IOS.