Listaverk vikunnar: Sólstólar

Sólstólar eftir Helgu Guðrúnu Helgadóttur, 1998.

Listaverk vikunnar er Sólstólar eftir Helgu Guðrúnu Helgadóttur frá 1998. Verkið er staðsett við strandlengjuna í Nauthólsvík.

Verkið samanstendur af sjö stórum tréstólum sem komið er fyrir í hálfhring. Bak þeirra hallar mismikið. Stefna og halli stólanna miðast við stöðu sólar á himni, frá austri til vesturs, frá sólarupprás til sólarlags. Stólarnir standa fyrir ofan laut sem myndar hálfhring móti suðri og draga hana fram í umhverfinu.

Hugmyndin að baki verkinu er sú að það eigi ekki að draga athygli að sjálfu sér, heldur hvetja vegfarendur til að gera hlé á göngu sinni, tylla sér niður og velja sér stól eftir stund dagsins og njóta umhverfisins.

Verkið var gert fyrir sýningu Myndhöggvarafélags Reykjavíkur, „Strandlengjan“, sumarið 1998.