13.05.2019
Listaverk vikunnar: Sunnudagur
Listaverk vikunnar er Sunnudagur frá 2000 eftir Guðjón Ketilsson. Verkið er staðsett við strandlengjuna í Víkurhverfi.
Samkvæmt listamanninum er verkið hugsað sem sviðsetning á hugarástandi. Sunnudagurinn er kyrrstæður svo Guðjón vildi skapa verk sem vísaði í kyrrt ástand eða værð. Sunnudagurinn markar endi vikunnar, en jafnframt upphaf nýrrar.
Verkið er úr cor-ten stáli og var hluti af sýningunni Strandlengjan sem Myndhöggvarafélagið í Reykjavík stóð fyrir en það verkefni hófst á tuttugu ára afmæli félagsins árið 1998 og náði svo hámarki á Listahátíð árið 2000.