Listaverk vikunnar: Þorsteinn Erlingsson

Þorsteinn Erlingsson eftir Ríkarð Jónsson frá 1960.

Listaverk vikunnar er Þorsteinn Erlingsson eftir Ríkarð Jónsson frá 1960. Brjóstmyndin, sem er af skáldinu ástsæla Þorsteini Erlingssyni (1845-1914), er staðsett á Klambratúni en dagur íslenskrar tungu er laugardaginn 16. nóvember.

Ríkarður Jónsson (1888-1977) var myndhöggvari og tréskurðarlistamaður. Hann er þekktastur fyrir brjóstmyndir sínar og lágmyndir af samtíðarmönnum og útskurðarmuni, þ.á m. útskurðarverkið á dyrum Arnarhvols við Arnarhól í Reykjavík og fundahamar allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna sem var gjöf íslensku þjóðarinnar til nýstofnaðra Sameinuðu þjóðanna eftir síðari heimsstyrjöld.

Björn Th. Björnsson greinir verk Ríkarðs í bók sinni Íslenzk myndlist. Þar er þrennt sem hann tekur til og einkennir listamanninn. Í fyrsta lagi er það djúp virðing fyrir handverkinu sem listrænni eigind. Þá telur Björn Ríkarð líta meira til forns menningararfs fremur en hinnar nýju framvindu í listum. Í þriðja lagi telur hann Ríkarð meta smá og oft táknræn lýsingaratriði myndar sem í sjálfu sér sé án verulegra krafna um formræna þátttöku þeirra í heild listaverks.

Árið 2019 er ár listar í almenningsrými hjá Listasafni Reykjavíkur. Hlaðið niður snjallforriti safnsins, Útilistaverk í Reykjavík, ókeypis fyrir Android og IOS.